Total Pageviews

Tuesday, April 26, 2011

Ungfrú Ísland!

Vá! Seinasta bloggið hjá mér fékk yfir 100 views! Enda var þetta líka blogg um frábæran mann!

En já, eins og sumir eru búin að frétta er ég að fara að taka þátt í Ungfrú Ísland! Ví ^^
Keppnin er eftir tæpan mánuð, þannig ég þarf að fara að hlaupa af mér rassgatið til að reyna að losa mig við restina af bumbunni minni! gaaaangi mér vel!

En gallinn við þessa keppni er að ég held að ég þurfi að borga aaaallan kostnað sjálf! Ferða kostnað, ræktar kostnað og allt sem tengist þessu, ég veit, fúllt. En þetta er nú bara einusinni

Þannig ég á eftir að búa fyrir sunnan næsta mánuðinn! þetta verður dýrt! þarf að reyna að redda vinnunni minni og þannig veees en þetta reddast!

Er samt orðin smá mikið stressuð fyrir þessu! ég á eftir að vera eins og hvalur hliðiná hinum stelpunum! en þá verður bara ein stelpan með smá utaná sér í þessari keppni :)

En núna er ég svo mikið að reyna að redda mér kjól, er að reyna að fá lánaðan eða kaupa einhvern notaðan ódýrt, því þessir kjólar kosta svo fooookk mikið! held að ég fái ekki kjól undir 30 þúsun!!! 
Þannig ef eeeinhver veit um fallegan síðkjól til sölu eða leigu má endilega láta mig vita! 

Og líka þar sem ég þarf að byrja aftur á hollustu matnum mínum vanntar mér góðar uppskriftir af góðum og hollum mat! Og líka vanntar hugmyndir af boost! er aaaalltaf með það sama og er byrjuð að fá leið á því! Er alltaf bara með jarðaber, bláber og banana, svo djús og kókosmjólk, já ég nota kókosmjólk í staðinn fyrir skyr.
En allar hugmyndir eru vel þegnar!


Ég og Ingunn fallega
Bikiní
Tískusýningin
hvítu fætur!
Fallegi kjóll


9 comments:

  1. jarðaber og létt ab mjólk í boozt

    ReplyDelete
  2. mangó, ananas, melóna + flórídana -geðveikt að hafa spínat með, það er uppáhalds booztið mitt :)

    Ég nota sjálf aldrei skyr/mjólkurvörur í boozt, finnst það alveg eyðileggja ferskleikann.

    ReplyDelete
  3. ú prófa það!

    Já ég nota alltaf bara kókosmjólk, kemur í veg fyrir að drykkurinn verður bara krap og verður mýkra :) alveg hætt að nota skyr, finnst það verða svo þykkt og eitthvað og svo er oft viðbættur sykur í skyrinu og svona :)

    ReplyDelete
  4. Víí ég er svooo spennt að koma horfa á ykkur þrjár föngulegu dömur að vestan ;)!!
    Kv. Svala :)

    ReplyDelete
  5. Þetta verður bara gaman!! Erfitt að geta ekki misst sig í sukkinu í prófunum samt haha.. en sé þig á helginni sæta :)

    Kv. Ingunn :)

    ReplyDelete
  6. Kostar alveg heilann helling, þekki það mæta vel! En sæta, þú talar við Arnar, ef þetta er eins og í fyrra þá ættiru að fá aðgang í World Class rækt og spa :) Svo með kjólana þá er ég með númerið hjá yndiiiiislegri konu, Silju Allans.. hún á svo fallega kjóla sem hún leigir, ég fékk kjól hjá henni fyrir krýninguna á UR 2011 :) svo talaðu við mig ef þú vilt fá það!
    Matamál.. sjæs bara nog af grænmeti, ávöxtum að narta í svo er líka nings rétt á milli Broadway og World Class vooða hentugt haha :)
    Gangi þér super vel og hlakka til að fylgjast með þér á kvöldinu skvis ;)
    -Íris Telma

    ReplyDelete
  7. VERY exciting - we are all behind you! :)
    Lots of love,
    Yja

    ReplyDelete
  8. Gangi þér vel elsku frænkubeib :)

    Hún Bára Dal er sko snillingur í góðum og hollum bústum :)

    Við fylgjumst spennt með hér í Búðardal, ég var annars svo stollt af ykkur Vestfirsku stelpunum. Það er kaman að sjá "eðlilega" útlítandi fallaegar stúlkur :)
    Ef maður ber ykkur samna við vesturlandskeppnina þar sem allar voru YFIRbúnkaðar, með eins neglur, eins hár og eins beinagrind ;)

    Knús og koss
    Vertu áfram þú sjálf og stattu fast á því ;)
    Gróa

    ReplyDelete
  9. Ég fylgist spennt með þér frá Grænlandi sæta skvís :) Þetta verður bara skemmtileg reynsla í bankann og njóttu þess í botn! Og í "skus bænum" haltu áfram að vera þú sjálf :)
    Ég er svoo stolt af þér ;)Gangi þér vel með þetta allt saman. Knús og koss :) Heiða

    ps. einhverntíma var mér sagt að kókosmjólk og kókos væri mjög fitandi. En það er til light kókosmjólk, það er kannski spurning um að skoða það bara ;)

    ReplyDelete