Total Pageviews

Thursday, April 28, 2011

Þegar maður á að vera að læra

vá ég vissi ekki að það væru svona margir sem skoðuðu bloggið mitt! Bara gaman ^^ 

En nú byrjar fjörið! fer suður á morgun á fyrstu æfinguna fyrir Ungfrú Ísland! smá stress í gangi! Þetta á bara eftir að vera gaman, vona ég 8)

Því ég verð svo mikið fyrir sunnan fékk ég smá vinnu hjá frænda mínum á meðan þannig það er bara geðveikt! fannst svo leiðinlegt hvað ég væri að missa mikið úr vinnu eeen svo er ekki :)

afhverju er ekki til svona ein tafla eða eitt tæki sem maður tekur/fer í og búmm! sléttur magi og flottur líkami. Ég er ekki að nenna allri þessari hollustu, ég er svo mikill sukkari! Elska mat, elska bara feitan mat og elska að liggja í leti! Ég veit þetta er hræðilegt!

En ég verð víst að koma mér í form svo ég geri mig ekki af fíbbli á sviðinu (þótt ég eigi eftir að ná að gera það 8)  )  

En shit, kjóll! alltaf svo mikið vesen á þessu kjólastandi, þarf að finna kjól sem kostar ekki aðra höndina og annað nýrað! Dauðlangar í fallegan bláááan kjól, ég eeelska bláan!

En ég er að fara að skoða einn kjól sem er ótrúlega bara plain og blár, vonandi passar hann og þá er alveg hægt að breyta honum og setja skraut á hann og þannig skemmtilegt

En ómæ! Rósa og stelpurnar gerðu svona hafraklatta sem þarf ekki að baka
Og guð minn góður hvað þetta er gott! ætlaði aldrei að hætta að borða þetta! einum of gott!
Ætla núna að plata mömmu til að kaupa í svona, svo ég get gert þetta og borðað á meðan ég keyri suður á morgun  ^^


En já fyrsta æfing núna um helgina! Wish me good luck!

1 comment:

  1. Gangi þér vel dúllan mín ;) Ég hef gert svona hafraklatta í nokkur ár og það er hægt að gera allskonar útgáfur :) stundum, þegar ég nenni, sker ég þá í bita og set í ofninn í smástund.. þá verða þeir krönsí utaná og seigir inní, mjööög gott :) Knús og kreist, Alda.

    ReplyDelete