Total Pageviews

Friday, April 22, 2011

22.04.11

Ég á fimm ára fermingar afmæli í dag! Vá hvað ég er orðin gömul! 

En hann yndislegi afi minn, Jóhann Magnússon, hefði orðið 66 ára í dag ♥ og eru komin 6 ár síðan hann féll frá. En það er ekki hægt að finna yndislegri mann en hann! 
Í hvert skipti sem ég er spurð hverjir eru foreldrar mínir segi ég alltaf, ég er dóttir hans Magga Jóh, barnabarnið hans Jóa Magg, og ALLIR vita þá hver afi minn var og eiginlega alltaf fær maður að heyra æðislegar sögur um hann afa um hversu æðislegur og skemmtilegur hann var. Alltaf jafn gaman að heyra svona fallegt um þennan frábæra mann!


Ég var að lesa minningargrein um hann afa á mbl og að lesa það sem aðrir segja um hann lætur mann brosa, en samt falla tár yfir söknuði. 


Ef einhverjum langar að lesa þessa grein þá bara ýta hér

En ég ætla að setja það sem ég og Heiðdís skrifuðum og einnig það sem hún Íris skrifaði 
"Elsku afi.
Þótt þú sért farinn vitum við að þú verður alltaf hjá okkur. En nú ertu kominn upp til himna og getur farið á fullt af Presley-tónleikum. Við munum hvað það var alltaf gaman í Míkrunni þegar þú spilaðir lag nr. 9 og hvað þú borðaðir mikið af súkkulaðirúsínum og gerðir krossgátur. Þú varst líka alltaf útí skúr en gast ekki klárað bílinn þinn en hann pabbi klárar hann bara fyrir þig.
Þú varst jákvæðasti kall í heimi, varst alltaf í góðu skapi þótt þú værir svona veikur og læknirinn sagði að þú hefðir verið uppáhaldssjúklingurinn hjá öllum. Þú varst líka alveg ákvðinn í að vera hjá okkur um jólin og amma dekraði við þig eins og hún gat. Við ætlum að passa vel upp á hana fyrir þig og vera mikið hjá henni.
Við elskum þig.
Heiðdís og Bylgja."

"Takk fyrir allt elsku afi, ég er svo þakklát að hafa fengið að vera með þér allan þennan tíma.
Við sátum eitt kvöld saman við eldhúsborðið með landabréfabók og ferðuðumst um allan heim, og skemmtum okkur konunglega eins og alltaf. Og manstu þegar við vorum í fjallaskálanum hennar Elvu að spila gettu betur og þú tókst Elvis með stæl, það var nú ekki leiðinlegt. Svo fórum við í pottinn í þónokkuð marga klukkutíma og fórum svo í Mónópólí og spiluðum langt fram eftir nóttu, það voru heldur ekki fáir veiðitúrarnir sem við fórum í ... Manstu þegar stelpurnar (Heiðdís og Bylgja) voru að koma heim frá Danmörku. við hlustuðum stanslaust á lag númer 9 og þegar við sáum þær koma á móti okkur stungum við íslenska fánanum út um gluggann og veifuðum honum. Það var mikil gleði þegar við sáum hvor aðra... Elsku afi, þú lifir að eilífu í sálu minni, kveðja
Íris Ösp."


En ég á alltaf eftir að muna þegar afi tók Elvis Presley uppí fjallaskála og hvað við hlógum því hann var svo fyndinn!
Þegar ég, Heiðdís og Íris vorum að gera ömmu og afa geðveik yfir að vera alltaf öskrandi afturí micrunni þeirra "númer 9! númer 9! númer 9!"
Einnig allar þessar góðu stundir í Móholtinu, ég hef oft keyrt framhjá því húsi og bara stoppað og horft á það og minningarnar flæða. Við stelpurnar að tjalda í garðinum, príla á akkerinu, afi að klippa runnana og svo er auðvitað skúrinn, skúrinn sem afi var alltaf í að laga bíla og var vanalega alltaf að föndra eitthvað við að laga einn ákveðin bíl, volkswagen karmann ghia, stelpulegri bíl hef ég aldrei séð! Rauð áklæði innaní og rauðsanseraður að utan.

En margar skemmtilegar minningar hefur maður.
Ég er svo ánægð með ákvörðuna að hafa fengið mér tattoo um minningu hans, ég sem er með mestu hræðslu við nálar sem hægt er að hafa! 
En ég fékk mér "You are always on my mind" eftir uppáhaldið hann Elvis Presley.
En afi var mikill Presley fan og hefur smitað mig af því

En lengra ætla ég ekki að hafa þetta, enda orðið frekar langt

En ég elska þig og sakna þín afi minn 


No comments:

Post a Comment