Total Pageviews

Friday, April 8, 2011

09.04.2011


Ég hef oft spáð í að vera sjálf með blogg en aldrei hefur orðið neitt úr því. Eins og flestir sem þekkja mig ættu að vita að ég hef áhuga á förðun og allt sem tengist henni.
Þannig bloggin hér verða mest um förðun og kannski fatnað og bara það sem ég hef áhuga á, þannig það kemur örugglega eitthvað smá um hesta hérna 

Ætla líka að reyna að vera dugleg að setja inn alskonar tips um förðun, það sem ég veit og hef lært frá öðrum.

Og vil bara taka það fram, nei ég er ekki lærð eða neitt þannig. Hef enga þannig reynslu af förðun, hef bara kennt sjálfri mér og horfi á myndbönd á youtube. Þannig ef fólki finnst förðunin mín ekki góð þá er það bara þannig þar sem ég er ekkert lærð

En já eins og ég sagði þá hef ég mikinn áhuga á förðun og allt sem tengist henni. Eins og böllin í áttunda – níunda bekk í grunnskóla var ég alltaf að reyna að gera einhverja augnförðun á mig en það tókst illa þar sem maður var bara með einhverja hörmulega förðunarbursta með gerfihárum. En alltaf reyndi maður.

En þegar ég var á mínu fyrsta ári í menntaskóla fann ég á netinu 24 bursta sett til sölu. Þrátt fyrir að það var smá dýrt keypti ég það. Og þetta var bestu kaup sem ég hef gert! Elska þessa bursta! Svo mjúkir og góðir! Og nú dauðlangar mér að kaupa mér annað svona sett! Nei ég á ekki nóg af þeim!




Eftir þetta sett byrjaði maður að æfa sig meira við að farða sig og tókst það alltaf betur og betur.

Ári seinna fann ég á facebook síðu sem seldi förðunarvörur og þá mest augnskugga pallettur og förðunarbursta sett. Þar keypti ég 120 lita palettuna mína sem ég elska! Þetta eru með þeim bestu augnskuggum sem ég hef átt! Allir regnboganslitir í þessu og þeir haldast vel á og þekja rosalega vel þannig maður þarf mjög lítið af þeim í einu. Og þeir eru nákvæmlega eins þegar þeir eru komnir á augun á þér og þeir voru í boxinu sínu. Ég hata! Augnskugga sem eru ekki eins! Eins og þegar þú ert með svartan augnskugga og lætur á augun á þér og verður eiginlega bara grár, þoli það ekki. 

En með þessum augnskuggum var líka annað förðunabursta sett. Það er öðruvísi en fyrra settið mitt því þetta er með svona stífari hárum. Mjög gott en ég fíla fyrra burstasettið mitt betur. En þetta er auðvitað bara persónubundið hvernig fólki finnst.




En á seinustu önn keypti ég mér svo 28 lita augnskuggapalettu í náttúrulegum litum, sem er mest brúnir litir, sem ég fann á facebook.

Eeeeelska þessa liti! Svo fallegir og náttúrulegir! Það eina sem vanntaði meira af í 120 lita palettuna.




Síðan seinasti fjölskyldumeðlimurinn minn er hyljarapaletta. Sem inniheldur einn highlight, þrjá color corrector síðan er rest hyljarar í öllum litum.



En já þetta er það sem ég hef verið að kaupa mér seinustu árin.

Og langar alltaf í meira!

En fyrir þá sem hafa áhuga þá eru þetta síðurnar sem ég panntaði þetta af

http://www.facebook.com/AR.boutique
http://www.facebook.com/Ladyhawke.verslun

http://www.facebook.com/fiercefot

No comments:

Post a Comment