Total Pageviews

Friday, April 15, 2011

Föstudagur!

Loksins páskafrí!

Kosningavaka í kvöld hjá MÍ. 
sem þýðir að ég á eftir að eyða svona 2 tímum í að leika mér í að mála mig fyrir kvöldið! Alltaf jafn gaman!^^

En fokk þarf að kaupa mér nýtt meik! 
Hef verið að nota L'oreal true match minerals foundation núna í nokkur ár og er að elska það! þekur ekkert smá vel og helst á allan daginn. hata meik sem maður setur á sig áður en maður fer í skólann, kemur svo heim og maður er svo fokk flekkóttur því meikið er mest allt farið af.
En þetta meik gerir það ekki, helst á allan daginn og ég hef meirisegja gert að ég sofni með meikið á mér og vakna svo daginn eftir og það er enn á.



En gallinn við þetta meik er hvað það helst of vel á! Þegar ég fer í sturtu og skola á mér andlitið og allt það, kem úr sturtunni og jújú, meikið er enn á!

En þá veit ég um mjög svo sniðugt ráð.

KÓKOSOLÍA!

kaupi krukku af kókosolíu og nota hana sem make up remover! algjör snilld. set hana rétt svo út um allt andlitið á mér, nudda kansnki smá, tek síðan bara pappír og þurka af og þá fer allt meik sem er á húðinni minni! nota þetta líka á augun.

Ég er þannig að ég er með svo viðkvæma húð, ég get ekki notað svona hreynsiklúta því það er of sterk sápan í þeim, og plús þetta er dýrt og endist ekki það lengi.

Nota líka kókosolíuna sem varasalfa og svo er ótrúlega sniðugt að setja smá kókosolíu undir augun áður en þú ferð að sofa og þegar þú vaknar daginn eftir eru baugar og þrútinn í augunum búinn að minka og jafnvel hverfa alveg

Þannig ég mæli með að þið stelpur kaupi eina krukku af kókosolíu! Ég veit að hún er smá dýr, en hún endist ekkert smá lengi! Er enn á sömu krukku sem ég keypti í byrjun sumarsins 2010^^


No comments:

Post a Comment