Ég er alltaf jafn hugmyndasnauð þegar það kemur að bloggi!
En Ungfrú Ísland æfingarnar eru komnar á fullt, æfingar á hverjum degi og svona. Rosa gaman allt!
Búin að kaupa mér kjól fyrir keppnina! VÍ! Hann er svooooo fallegur! shiiit!
En hann er blágrænn, svona ekta Bylgjulitur! Og þetta er rjómatertukjóll, þannig pilsið er frekar stórt, það eru ekki mikið af steinum, ég vil ekki mikið af skrauti, og og og bara ógeðslega flottur, eða það finnst mér :)
Verðið bara að horfa til að sjá hann ;)
En svo þið fáið aðeins betri hugmynd um hvernig kjóllinn er þá er hann frá sama merki og kjóllinn hennar Fanneyjar sem vann Ungfrú Ísland í fyrra, bara aðeins öðruvísi útgáfa
Okey þegar ég pæli í því er minn frekar mikið öðruvísi en þessi |
aðeins 16 dagar í keppnina! shiiiit! Eftir aðeins 16 daga verð ég í sjónvarpinu! eftir 16 daga verð ÉG af öllum að keppa í Ungfrú Ísland! eitthvað sem ég hélt að ég gæti aldrei gert! Man bara eftir mér í Móholtinu hjá ömmu og afa að horfa á Ungfrú Ísland keppni og nennti ekki að leika við Heiðdísi og Írisi, og þarna var ég svona 11-12 ára :) æj þetta verður bara gaman!
En shiiiit hvað ég er hræðileg! þegar ég má ekki borða feitt eins og hamborgara og þannig þá geri ég ekkert annað en að langa í hamborgara!
Eins og fyrir Ungfrú Vestfirðir var ég að farast! Mér langaði svooo í feitan mat! síðan þegar keppnin var búin þá langaði mér bara ekkert í feitan mat! ooog þetta er komið aftur! hræðilegt! langar í allt sem ég má ekki borða!
Eins og núna dauðlangar mér í beikon borgara!
![]() |
Aaaaahhh! |
En já þetta var bara svona smá update um mig, kemur meira seinna :D
No comments:
Post a Comment