Aðeins 10 dagar í keppnina! 10 DAGAR!
Tíminn er búinn að vera svo fljótur að líða! Búin að gera mikið skemmtilegt hérna fyrir sunnan, allskonar myndatökur og æfingar á hverju kvöldi.
Ég er búin að koma sjálfri mér á óvart hvað ég næ að rata mikið hérna fyrir sunnan, ég sem er aldrei hérna og keyri eiginlega aldrei fyrir sunnan, þetta er 3 skiptið sem ég keyri í reykjavík og hin 2 voru fyrir ári síðan.
En hvað um það, get ekki beðið eftir að komast heim á hestbak! þarf líka að þjálfa þá fyrir keppnina sem er á þingeyri.
En úú! ég fæ bráðum orlofið mitt! ví! er þá að spá í að vera góð við mig og fara í lífland og leyfa mér smá þar.
Ég er alltaf eins og of feitur krakki í nammibúð þegar ég er þarna inni, langar í ALLT þarna!
En er nú að íhuga að kaupa mér hálfstangir, svo ég nái eitthvað að ráða við hann Draupnir þegar við erum með öðrum í reiðtúrum!
En já næstu dagar eru bara endalausar æfingar fyrir keppnina, bara gaman
vona bara að sem flestir horfa á keppnina í sjónvarpinu til að fylgjast með, langt síðan vestfirðir voru með fulltrúa í UÍ, hvað þá 3!
Vá hvað það fyrsta sem ég ætla að gera þegar ég kem heim er að ráðast á hamraborg og fá eitthvað feitt þar ooog svo fá mér sælu!
mmmm kroppsæla, mínus lauk, plús beikon og auka sósa!!
![]() |
Verð að láta allavega eina mynd með hverju bloggi! |
No comments:
Post a Comment