Þetta er þriðja skiptið sem ég næ að eyðileggja hjá mér hleðslutækið á tölvunni! þannig ég tek bara tölvuna hennar mömmu í staðinn á meðan minn ástkæri pabbi reynir að laga hleðslutækið.
En hér fyrir neðan talaði ég um hvað ég elskaði og langaði í, núna kemur smá það sem ég þoli ekki.
Með því versta sem ég sé er að sjá stelpur úti á djamminu eða bara á myndum með ljótt eye make up!
Okey ég veit sjálf að mitt er ekkert pörfekt eða neitt þannig! Ég fæ alveg hroll við að skoða myndir af mér fyrir ári síðan og eldra en það því mér finnst ég hafa málað mig hræðilega! en ég hef æft mig líka mjög mikið undafarin ár og maður er alltaf að læra eitthvað nýtt.
En þrátt fyrir það finnst mér svo ljótt að sjá sætar stelpur sem hafa þá málað sig og gert smoky en blanda litunum ekki nógu vel! og það eru skörp og ljót skil á milli litana!
Galdurinn við flotta augnförðun er að blanda! blanda blanda blanda!
Ég hef reyndar engar myndir af því sem mér finnst ljót förðun og ætla ekki að finna neinar þannig myndir því það getur jú sært aðra. En þetta er auðvitað allt bara mín skoðun á förðun og ég er sjálf en að læra á þetta.
En ég skoða myndir af sjálfri mér fyrir ári síðan og á flestum er ég með alls ekki flotta augnförðun! frekar lélega blandað saman hjá mér og ég var líka mjög smeik við að nota liti þegar ég var að mála mig, notaði alltaf þá sömu. En núna elska ég að nota liti! Finnst líka gaman að hafa augnförðunina smá dökka hjá mér, veit ekki afhverju en mér finnst það sjálf bara persónulega fara mér betur en lítil förðun. Annars er ég bara tóm í framan.
Og gerfiaugnhár! geta gert svo mikið kraftaverk! stækka augun og gera oft förðunina betri, finnst mér ;)
En ég hef verið oft spurð hvort ég sé eitthvað lærð og svarið er alltaf hjá mér "nei ég lærði allt af youtube".
Sem er satt, hef legið dögunum saman við að skoða myndbönd á youtube um hvernig á að mála sig!
og ætla hér að setja inn linka af þeim stelpum sem hafa kennt mér svo margt um förðun!
En fyrst er það hún Lauren en hún byrjaði á að setja inn myndbönd inná youtube síðuna sína fyrir 3 árum og myndböndin urðu vinsælari og vinsælari. og núna er hún þekktur snyrtifræðingur og er komin með sína eigin snyrtivörulínu og ég veit ekki hvað!
Hún hefur kennt mér lang mest!
Síðan er ein önnur hún Kandee en hún er með svipaða sögu og Lauren. Hún er alltaf hress! Elska að horfa á myndböndin hennar!
Síðan er ein stelpa sem heitir Abigail. Ég elska hvað hún er dugleg að nota mikið af litum! Ég byrjaði að nota meira af litum í mína förðun eftir myndböndin hennar.
En já þetta eru þær 3 helstu sem mér finnst varið í að fylgjast með og skoða.
![]() | |
Læt þessa mynd fara með hefur hjálpað mér að nota hana |
Og alltaf næ ég að gera löng blogg!
haha segji það sama, alltaf þegar ég er spurð hvort ég sé lærður förðunarfræðingur þá segji ég Nei ég er sjálflærð af youtube haha:D ooog elska líka kandee!!! þú ættir að skoða þessa MakeupByTiffanyD hun er rosa klár og skemmtileg:) en annars skemmtileg blogg hjá þér sæta! haltu þessu áfram;*
ReplyDeletevá ég hef líka verið að horfa á förðunarvídjó í um það bil ár núna á youtube og hef lært svo ótrúlega mikið, maður getur legið yfir þessu allveg tímum saman. Og já mér finnst MakeupByTiffanyD líka vera ótrúlega góð (:
ReplyDelete