Total Pageviews

Thursday, April 28, 2011

Þegar maður á að vera að læra

vá ég vissi ekki að það væru svona margir sem skoðuðu bloggið mitt! Bara gaman ^^ 

En nú byrjar fjörið! fer suður á morgun á fyrstu æfinguna fyrir Ungfrú Ísland! smá stress í gangi! Þetta á bara eftir að vera gaman, vona ég 8)

Því ég verð svo mikið fyrir sunnan fékk ég smá vinnu hjá frænda mínum á meðan þannig það er bara geðveikt! fannst svo leiðinlegt hvað ég væri að missa mikið úr vinnu eeen svo er ekki :)

afhverju er ekki til svona ein tafla eða eitt tæki sem maður tekur/fer í og búmm! sléttur magi og flottur líkami. Ég er ekki að nenna allri þessari hollustu, ég er svo mikill sukkari! Elska mat, elska bara feitan mat og elska að liggja í leti! Ég veit þetta er hræðilegt!

En ég verð víst að koma mér í form svo ég geri mig ekki af fíbbli á sviðinu (þótt ég eigi eftir að ná að gera það 8)  )  

En shit, kjóll! alltaf svo mikið vesen á þessu kjólastandi, þarf að finna kjól sem kostar ekki aðra höndina og annað nýrað! Dauðlangar í fallegan bláááan kjól, ég eeelska bláan!

En ég er að fara að skoða einn kjól sem er ótrúlega bara plain og blár, vonandi passar hann og þá er alveg hægt að breyta honum og setja skraut á hann og þannig skemmtilegt

En ómæ! Rósa og stelpurnar gerðu svona hafraklatta sem þarf ekki að baka
Og guð minn góður hvað þetta er gott! ætlaði aldrei að hætta að borða þetta! einum of gott!
Ætla núna að plata mömmu til að kaupa í svona, svo ég get gert þetta og borðað á meðan ég keyri suður á morgun  ^^


En já fyrsta æfing núna um helgina! Wish me good luck!

Tuesday, April 26, 2011

Ungfrú Ísland!

Vá! Seinasta bloggið hjá mér fékk yfir 100 views! Enda var þetta líka blogg um frábæran mann!

En já, eins og sumir eru búin að frétta er ég að fara að taka þátt í Ungfrú Ísland! Ví ^^
Keppnin er eftir tæpan mánuð, þannig ég þarf að fara að hlaupa af mér rassgatið til að reyna að losa mig við restina af bumbunni minni! gaaaangi mér vel!

En gallinn við þessa keppni er að ég held að ég þurfi að borga aaaallan kostnað sjálf! Ferða kostnað, ræktar kostnað og allt sem tengist þessu, ég veit, fúllt. En þetta er nú bara einusinni

Þannig ég á eftir að búa fyrir sunnan næsta mánuðinn! þetta verður dýrt! þarf að reyna að redda vinnunni minni og þannig veees en þetta reddast!

Er samt orðin smá mikið stressuð fyrir þessu! ég á eftir að vera eins og hvalur hliðiná hinum stelpunum! en þá verður bara ein stelpan með smá utaná sér í þessari keppni :)

En núna er ég svo mikið að reyna að redda mér kjól, er að reyna að fá lánaðan eða kaupa einhvern notaðan ódýrt, því þessir kjólar kosta svo fooookk mikið! held að ég fái ekki kjól undir 30 þúsun!!! 
Þannig ef eeeinhver veit um fallegan síðkjól til sölu eða leigu má endilega láta mig vita! 

Og líka þar sem ég þarf að byrja aftur á hollustu matnum mínum vanntar mér góðar uppskriftir af góðum og hollum mat! Og líka vanntar hugmyndir af boost! er aaaalltaf með það sama og er byrjuð að fá leið á því! Er alltaf bara með jarðaber, bláber og banana, svo djús og kókosmjólk, já ég nota kókosmjólk í staðinn fyrir skyr.
En allar hugmyndir eru vel þegnar!


Ég og Ingunn fallega
Bikiní
Tískusýningin
hvítu fætur!
Fallegi kjóll


Friday, April 22, 2011

22.04.11

Ég á fimm ára fermingar afmæli í dag! Vá hvað ég er orðin gömul! 

En hann yndislegi afi minn, Jóhann Magnússon, hefði orðið 66 ára í dag ♥ og eru komin 6 ár síðan hann féll frá. En það er ekki hægt að finna yndislegri mann en hann! 
Í hvert skipti sem ég er spurð hverjir eru foreldrar mínir segi ég alltaf, ég er dóttir hans Magga Jóh, barnabarnið hans Jóa Magg, og ALLIR vita þá hver afi minn var og eiginlega alltaf fær maður að heyra æðislegar sögur um hann afa um hversu æðislegur og skemmtilegur hann var. Alltaf jafn gaman að heyra svona fallegt um þennan frábæra mann!


Ég var að lesa minningargrein um hann afa á mbl og að lesa það sem aðrir segja um hann lætur mann brosa, en samt falla tár yfir söknuði. 


Ef einhverjum langar að lesa þessa grein þá bara ýta hér

En ég ætla að setja það sem ég og Heiðdís skrifuðum og einnig það sem hún Íris skrifaði 
"Elsku afi.
Þótt þú sért farinn vitum við að þú verður alltaf hjá okkur. En nú ertu kominn upp til himna og getur farið á fullt af Presley-tónleikum. Við munum hvað það var alltaf gaman í Míkrunni þegar þú spilaðir lag nr. 9 og hvað þú borðaðir mikið af súkkulaðirúsínum og gerðir krossgátur. Þú varst líka alltaf útí skúr en gast ekki klárað bílinn þinn en hann pabbi klárar hann bara fyrir þig.
Þú varst jákvæðasti kall í heimi, varst alltaf í góðu skapi þótt þú værir svona veikur og læknirinn sagði að þú hefðir verið uppáhaldssjúklingurinn hjá öllum. Þú varst líka alveg ákvðinn í að vera hjá okkur um jólin og amma dekraði við þig eins og hún gat. Við ætlum að passa vel upp á hana fyrir þig og vera mikið hjá henni.
Við elskum þig.
Heiðdís og Bylgja."

"Takk fyrir allt elsku afi, ég er svo þakklát að hafa fengið að vera með þér allan þennan tíma.
Við sátum eitt kvöld saman við eldhúsborðið með landabréfabók og ferðuðumst um allan heim, og skemmtum okkur konunglega eins og alltaf. Og manstu þegar við vorum í fjallaskálanum hennar Elvu að spila gettu betur og þú tókst Elvis með stæl, það var nú ekki leiðinlegt. Svo fórum við í pottinn í þónokkuð marga klukkutíma og fórum svo í Mónópólí og spiluðum langt fram eftir nóttu, það voru heldur ekki fáir veiðitúrarnir sem við fórum í ... Manstu þegar stelpurnar (Heiðdís og Bylgja) voru að koma heim frá Danmörku. við hlustuðum stanslaust á lag númer 9 og þegar við sáum þær koma á móti okkur stungum við íslenska fánanum út um gluggann og veifuðum honum. Það var mikil gleði þegar við sáum hvor aðra... Elsku afi, þú lifir að eilífu í sálu minni, kveðja
Íris Ösp."


En ég á alltaf eftir að muna þegar afi tók Elvis Presley uppí fjallaskála og hvað við hlógum því hann var svo fyndinn!
Þegar ég, Heiðdís og Íris vorum að gera ömmu og afa geðveik yfir að vera alltaf öskrandi afturí micrunni þeirra "númer 9! númer 9! númer 9!"
Einnig allar þessar góðu stundir í Móholtinu, ég hef oft keyrt framhjá því húsi og bara stoppað og horft á það og minningarnar flæða. Við stelpurnar að tjalda í garðinum, príla á akkerinu, afi að klippa runnana og svo er auðvitað skúrinn, skúrinn sem afi var alltaf í að laga bíla og var vanalega alltaf að föndra eitthvað við að laga einn ákveðin bíl, volkswagen karmann ghia, stelpulegri bíl hef ég aldrei séð! Rauð áklæði innaní og rauðsanseraður að utan.

En margar skemmtilegar minningar hefur maður.
Ég er svo ánægð með ákvörðuna að hafa fengið mér tattoo um minningu hans, ég sem er með mestu hræðslu við nálar sem hægt er að hafa! 
En ég fékk mér "You are always on my mind" eftir uppáhaldið hann Elvis Presley.
En afi var mikill Presley fan og hefur smitað mig af því

En lengra ætla ég ekki að hafa þetta, enda orðið frekar langt

En ég elska þig og sakna þín afi minn 


Monday, April 18, 2011

18.04.11

Vá hvað ég haaaata snjó! hata líka hvað hann kemur og fer! algjörlega óþolandi!
Fyrir mér á hann bara að vera frá miðjum desember til miðjan janúar og fara svo bara, alveg! 
Hata svona hitabreytingar! fer svo illa í húðina á mér >.< og fer líka illa með hófana á hestunum hjá mér þegar maður fer í útreiðatúr og jörðin er frosin og hörð.

Get ekki beðið eftir sumrinu! Ég vil helst hafa svona 30° hita á sumrin. Minst 20° og uppí 30° 

En páskarnir eru næstu helgi og þar með Aldrei Fór Ég Suður! En snillingurinn ég er að vinna aaaaalla helgina! en mér vanntar pening þannig það verður bara að hafa þetta þannig.

En ég er algjörlega hugmyndarsnauð á bloggi þannig ég ætla bara að setja myndir af flottri förðun sem ég hef fundið á netinu ^^

Finnst þessi vera eitthvað svo töff!

Er að elska þennan lit!


Ætla að prófa að gera svona einn daginn!










^^

Friday, April 15, 2011

Föstudagur!

Loksins páskafrí!

Kosningavaka í kvöld hjá MÍ. 
sem þýðir að ég á eftir að eyða svona 2 tímum í að leika mér í að mála mig fyrir kvöldið! Alltaf jafn gaman!^^

En fokk þarf að kaupa mér nýtt meik! 
Hef verið að nota L'oreal true match minerals foundation núna í nokkur ár og er að elska það! þekur ekkert smá vel og helst á allan daginn. hata meik sem maður setur á sig áður en maður fer í skólann, kemur svo heim og maður er svo fokk flekkóttur því meikið er mest allt farið af.
En þetta meik gerir það ekki, helst á allan daginn og ég hef meirisegja gert að ég sofni með meikið á mér og vakna svo daginn eftir og það er enn á.



En gallinn við þetta meik er hvað það helst of vel á! Þegar ég fer í sturtu og skola á mér andlitið og allt það, kem úr sturtunni og jújú, meikið er enn á!

En þá veit ég um mjög svo sniðugt ráð.

KÓKOSOLÍA!

kaupi krukku af kókosolíu og nota hana sem make up remover! algjör snilld. set hana rétt svo út um allt andlitið á mér, nudda kansnki smá, tek síðan bara pappír og þurka af og þá fer allt meik sem er á húðinni minni! nota þetta líka á augun.

Ég er þannig að ég er með svo viðkvæma húð, ég get ekki notað svona hreynsiklúta því það er of sterk sápan í þeim, og plús þetta er dýrt og endist ekki það lengi.

Nota líka kókosolíuna sem varasalfa og svo er ótrúlega sniðugt að setja smá kókosolíu undir augun áður en þú ferð að sofa og þegar þú vaknar daginn eftir eru baugar og þrútinn í augunum búinn að minka og jafnvel hverfa alveg

Þannig ég mæli með að þið stelpur kaupi eina krukku af kókosolíu! Ég veit að hún er smá dýr, en hún endist ekkert smá lengi! Er enn á sömu krukku sem ég keypti í byrjun sumarsins 2010^^


Wednesday, April 13, 2011

:)

Þetta er þriðja skiptið sem ég næ að eyðileggja hjá mér hleðslutækið á tölvunni! þannig ég tek bara tölvuna hennar mömmu í staðinn á meðan minn ástkæri pabbi reynir að laga hleðslutækið.

En hér fyrir neðan talaði ég um hvað ég elskaði og langaði í, núna kemur smá það sem ég þoli ekki.

Með því versta sem ég sé er að sjá stelpur úti á djamminu eða bara á myndum með ljótt eye make up!

Okey ég veit sjálf að mitt er ekkert pörfekt eða neitt þannig! Ég fæ alveg hroll við að skoða myndir af mér fyrir ári síðan og eldra en það því mér finnst ég hafa málað mig hræðilega! en ég hef æft mig líka mjög mikið undafarin ár og maður er alltaf að læra eitthvað nýtt.

En þrátt fyrir það finnst mér svo ljótt að sjá sætar stelpur sem hafa þá málað sig og gert smoky en blanda litunum ekki nógu vel! og það eru skörp og ljót skil á milli litana! 

Galdurinn við flotta augnförðun er að blanda! blanda blanda blanda!

Ég hef reyndar engar myndir af því sem mér finnst ljót förðun og ætla ekki að finna neinar þannig myndir því það getur jú sært aðra. En þetta er auðvitað allt bara mín skoðun á förðun og ég er sjálf en að læra á þetta.

En ég skoða myndir af sjálfri mér fyrir ári síðan og á flestum er ég með alls ekki flotta augnförðun! frekar lélega blandað saman hjá mér og ég var líka mjög smeik við að nota liti þegar ég var að mála mig, notaði alltaf þá sömu. En núna elska ég að nota liti! Finnst líka gaman að hafa augnförðunina smá dökka hjá mér, veit ekki afhverju en mér finnst það sjálf bara persónulega fara mér betur en lítil förðun. Annars er ég bara tóm í framan.
Og gerfiaugnhár! geta gert svo mikið kraftaverk! stækka augun og gera oft förðunina betri, finnst mér ;)

En ég hef verið oft spurð hvort ég sé eitthvað lærð og svarið er alltaf hjá mér "nei ég lærði allt af youtube".
Sem er satt, hef legið dögunum saman við að skoða myndbönd á youtube um hvernig á að mála sig!

og ætla hér að setja inn linka af þeim stelpum sem hafa kennt mér svo margt um förðun!


En fyrst er það hún Lauren en hún byrjaði á að setja inn myndbönd inná youtube síðuna sína fyrir 3 árum og myndböndin urðu vinsælari og vinsælari. og núna er hún þekktur snyrtifræðingur og er komin með sína eigin snyrtivörulínu og ég veit ekki hvað!
Hún hefur kennt mér lang mest!

Síðan er ein önnur hún Kandee en hún er með svipaða sögu og Lauren. Hún er alltaf hress! Elska að horfa á myndböndin hennar! 

Síðan er ein stelpa sem heitir Abigail. Ég elska hvað hún er dugleg að nota mikið af litum! Ég byrjaði að nota meira af litum í mína förðun eftir myndböndin hennar.

En já þetta eru þær 3 helstu sem mér finnst varið í að fylgjast með og skoða.


Læt þessa mynd fara með
hefur hjálpað mér að nota hana


Og alltaf næ ég að gera löng blogg!

Monday, April 11, 2011

11.04.11

Ég er svo tækniheft að það er ekki eðlilegt!
Er en að reyna að læra á þetta blogg dót. gengur mjög svo hægt! 
Og ég er alltaf jafn hugmyndasnauð á titlum á bloggin!

En ég er komin með like og dislike takka svona neðst

Það er svo margt sem manni langar í en hef ekki efni á að kaupa mér, þannig hér kemur myndablogg um það sem mér langar í! 

Þegar ég er búin að grennast nóg ætla ég að kaupa mér svona kjól!
ó þessi fegurð!
Ég er veik fyrir skóm í þessu sniði! og sjá reimarnar!
Langar í bæði svarta og hvíta
Kinnalita paletta
Gloss paletta
Ég elska gerfiaugnhár!
Mér finnst þessi ógeðslega kúl!
Gerfi augnhár fyrir neðri augnhárin! svo mikið möst!
ætla örugglega að pannta mér svona 3-4 stk næst!
^^

Saturday, April 9, 2011

Að laga brotinn augnskugga

Smá nöldur fyrst!

okey ég hata nöldur! hata nöldur og óþarfa vesen! þoli heldur ekki drama!

ég er þannig, því meira sem þú nöldrar í mér því minni líkur að ég nenni að gera hlutinn sem þú biður um

hata líka að lána fólki dót sem ég á og þau skila þeim ekki til baka! eða skila því til baka ónýtt eða með smá skemmdum.

eins og ég þoli ekki að lána stelpum teyjuna mína, er vanalega alltaf með teyju á mér en er hætt að lána hana þar sem ég fæ hana aldrei til baka!

eða lána snyrtidót frá mér eins og einhvern einn augnskugga eða eyeliner eða augnhár eða lím og fá það annað hvort ekki til baka eða mjög illa farið.

en já smá nöldur blogg í gangi.


En já ég ætlaði að koma með smá tips.

hvaða stelpa kannast ekki við að eiga augnskugga, púður, sólarpúður og bara þannig snyrtivörur og missa þær í gólfið og þær brotna eða meikið þitt brotnar í töskunni þinni og allt í mauki í boxinu.

þá er til eitt ráð til að laga þetta!

gerði þetta sjálf, keypti mér ótrúlega flott svona ljóst sólarpúður sem ég nota sem highlight á andlitið á mér, ótrúlega sætur, en stuttu eftir að ég keypti hann misti ég hann og hann brotnaði!

En þá sá ég á youtube sem er ótrúlega sniðugt og fann einnig aðra síðu hérna á netinu sem kom með mjög ítarlegt um hvernig þú getur lagað þetta. En það er stelpa sem heitir Eva sem er með Bjútý blog.

þú getur líka gert þetta með svona dufl augnskugga og pressað þá í fast form.

en já, eina sem þú þarft er sótthreinsi gel (getur líka notað spritt, ég gerði það), skeið og það sem þú ætlar að geyma augnskuggan/meikið/púðrið í.

Byrjar á að brjóta augnskuggan í duft með skeiðinni þinni, sumum finnst þægilegt að gera þetta í einhverju íláti en þegar ég gerði þetta með púðrið þá notaði ég bara boxið sem hann kom í.

Skellir svo smá sótthreinsi vökva eða geli útí, blandar þessu vel saman!

svo er það bara að koma þessu fyrir í því íláti sem þú villt geyma þetta í, mjög sniðugt að pressa þetta svo aðeins niður með eldhúspappír,  bæði til að hafa þetta sléttara og pappírinn dregur bleytuna í sig þannig þetta er fljótara að þorna.

svo bara að láta þetta þorna yfir nótt. En með meik og þannig gæti þetta þurft að bíða aðeins lengur því þetta er stærra en augnskuggar.

en þetta virkar!


Friday, April 8, 2011

09.04.2011


Ég hef oft spáð í að vera sjálf með blogg en aldrei hefur orðið neitt úr því. Eins og flestir sem þekkja mig ættu að vita að ég hef áhuga á förðun og allt sem tengist henni.
Þannig bloggin hér verða mest um förðun og kannski fatnað og bara það sem ég hef áhuga á, þannig það kemur örugglega eitthvað smá um hesta hérna 

Ætla líka að reyna að vera dugleg að setja inn alskonar tips um förðun, það sem ég veit og hef lært frá öðrum.

Og vil bara taka það fram, nei ég er ekki lærð eða neitt þannig. Hef enga þannig reynslu af förðun, hef bara kennt sjálfri mér og horfi á myndbönd á youtube. Þannig ef fólki finnst förðunin mín ekki góð þá er það bara þannig þar sem ég er ekkert lærð

En já eins og ég sagði þá hef ég mikinn áhuga á förðun og allt sem tengist henni. Eins og böllin í áttunda – níunda bekk í grunnskóla var ég alltaf að reyna að gera einhverja augnförðun á mig en það tókst illa þar sem maður var bara með einhverja hörmulega förðunarbursta með gerfihárum. En alltaf reyndi maður.

En þegar ég var á mínu fyrsta ári í menntaskóla fann ég á netinu 24 bursta sett til sölu. Þrátt fyrir að það var smá dýrt keypti ég það. Og þetta var bestu kaup sem ég hef gert! Elska þessa bursta! Svo mjúkir og góðir! Og nú dauðlangar mér að kaupa mér annað svona sett! Nei ég á ekki nóg af þeim!




Eftir þetta sett byrjaði maður að æfa sig meira við að farða sig og tókst það alltaf betur og betur.

Ári seinna fann ég á facebook síðu sem seldi förðunarvörur og þá mest augnskugga pallettur og förðunarbursta sett. Þar keypti ég 120 lita palettuna mína sem ég elska! Þetta eru með þeim bestu augnskuggum sem ég hef átt! Allir regnboganslitir í þessu og þeir haldast vel á og þekja rosalega vel þannig maður þarf mjög lítið af þeim í einu. Og þeir eru nákvæmlega eins þegar þeir eru komnir á augun á þér og þeir voru í boxinu sínu. Ég hata! Augnskugga sem eru ekki eins! Eins og þegar þú ert með svartan augnskugga og lætur á augun á þér og verður eiginlega bara grár, þoli það ekki. 

En með þessum augnskuggum var líka annað förðunabursta sett. Það er öðruvísi en fyrra settið mitt því þetta er með svona stífari hárum. Mjög gott en ég fíla fyrra burstasettið mitt betur. En þetta er auðvitað bara persónubundið hvernig fólki finnst.




En á seinustu önn keypti ég mér svo 28 lita augnskuggapalettu í náttúrulegum litum, sem er mest brúnir litir, sem ég fann á facebook.

Eeeeelska þessa liti! Svo fallegir og náttúrulegir! Það eina sem vanntaði meira af í 120 lita palettuna.




Síðan seinasti fjölskyldumeðlimurinn minn er hyljarapaletta. Sem inniheldur einn highlight, þrjá color corrector síðan er rest hyljarar í öllum litum.



En já þetta er það sem ég hef verið að kaupa mér seinustu árin.

Og langar alltaf í meira!

En fyrir þá sem hafa áhuga þá eru þetta síðurnar sem ég panntaði þetta af

http://www.facebook.com/AR.boutique
http://www.facebook.com/Ladyhawke.verslun

http://www.facebook.com/fiercefot