Aðeins 3 dagar í keppnina! vá hvað þetta var einum of fljótt að líða! Búið að vera svo gaman! Alveg einstök upplifun.
Vona nú að flestir horfi á keppnina núna á föstudaginn, þetta er á skjá einum í opinni dagskrá kl 22:00
það er nú langt síðan Vestfirðir voru með fulltrúa í Ungfrú Ísland, ekki búið að vera síðan 2007, og núna erum við 3
Verður nú spennandi að sjá hver af okkur 27 stelpum (held alveg örugglega að við séum 27) verður valin Ungfrú Ísland!
Hefði nú alveg viljað náð að grenna mig aðeins meir en ég fékk auðvitað bara svo stuttan tíma til að undirbúa mig fyrir þessa keppni, fékk að vita fyrir mánuði síðan að ég myndi keppa á meðan við áttum að fá að vita 2 mánuðum fyrir keppnina. En þá verð ég bara með mjúkar og kvenlegar línur ! Ætla bara að vera stolt af mínum mjúkum línum, meina ég náði að léttast og grennast meira en ég hélt að ég gæti einhverntímann gert þannig ég er bara sátt með þennan árangur sem ég hef náð. Langar reyndar ekki að verða alveg mjó, veit að átvaglinn ég á aldrei eftir að ná því ^^ Eeeelska bara mat alltof mikið til þess!
En búið að vera fínt hérna fyrir sunnan á meðan, get nú samt ekki beðið eftir að komast heim! vanntar að komast á hestbak! og guð hvað það verður ééétið! á eftir að háma í mig næstu dagana, samt örugglega ekki.
En ég komst að því á föstudaginn að hún Aldís Þórunn hefur slæm áhrif á mig! hún kom í bæinn og fór að leita sér af kjól fyrir lokaballið hjá sér þannig ég fór að hitta hana og náði að eyða svooo miklu af orlofinu mínu!
Síðan hélt ég líka að sá dagur sem ég myndi kaupa mér kaffi myndi aldrei koma! En ég keypti mér kaffi og fannst það gott! aaaaallt Aldísi að kenna 8) okey nei reyndar ekki
En fannst samt alveg frábært að fá að hitta hana
En Rósa, Maja og Lovísa ætla að koma á keppnina hjá mér sem er algjör snilld! verð svo gaman að hafa þær hjá mér!!
En næstu 3 daga er eiginlega stíf dagskrá, alveg frá 9 á morgnanna til 10 - 11 um kvöldin, ef ekki lengur
en nú er ég að verða of sein í sprey tan þannig lengra verður þetta ekki, vá en ömurlegur endir! shiit
En já, föstudagurinn 20, kl 22:00, skjár einn, opin dagskrá!
 |
Langar í svona! |