úps kominn meira en mánuður síðan seinast ;$
bara búið að vera brjálað að gera hjá mér þennan mánuð! er að vinna af mér rassgatið!
en já eins og flestir vita þá er Ungfrú Ísland búið, gæti ekki verið sáttari með þetta allt saman! kynntist alveg frábærum stelpum á meðan ég var þarna!
![]() |
Yndislegi fallegi hópur! |
okey það hafa allir heyrt af þessum sögum um hvað ungfrú ísland er strangt og það er bara verið að brjóta mann niður þarna og þetta er bara algjörlega ömurlegt, maður má ekki vera 1 kg og þungur, ströng megrun, mátt ekki vera svona og svona.. þetta er allt svo mikið kjaftæði! langaði bara að taka það fram!
mér fannst þetta hjálpa mér með mína sjálfsmynd, jú ég komst í betra form og maður grennist og léttist því maður vill ekki gera sig af fíbbli í sjónvarpinu.
![]() |
Þótt ég var ekki mjóust er ég nú samt mjórri en ég var! |
en hver man ekki eftir sögunni af einhverri stelpu sem fór í þetta og gerði eitthvað roooosa mál útúr þessu, þetta var EEEENGANN veginn svona! og að við áttum að skrifa undir einhvern samning? hvaða samning segi ég nú bara! ég var aldrei látin skrifa undir eitt né neitt!
vona svo innilega að það verður aftur ungfrú vestfirðir en ekki aftur eins og núna, eftir 4 ár, þá mæli ég hiklaust þið stelpur sem hafa áhuga á þessu, takið þátt! Þetta er með því besta sem ég hef gert!
jú allt þetta ferli kostar sitt, eins og kjóllinn minn kostaði tæpan 50 þúsund kr, ég veit allt þetta fyrir einn kjól, en hann var algjörlega þess virði!
![]() |
ég á enn eftir að fá myndirnar frá pabba sem hann tók af mér á keppninni >.<
en já þetta er bara svona smá um mína reynslu af þessum keppnum þar sem seinasta blogg hjá mér var að ég væri að keppa í þessu :)
ætla einnig að henda nokkrum myndum sem voru teknar á keppninni af mér
ætla að reyna að vera dugleg að koma með tips inná, og ég er smááá að spá í að vera vond, þar sem ég veit um FULLT af myndum af stelpum sem hafa málað sig fyrir djammið, farið út þannig og eru HRÆÐILEGAR! er smá að íhuga að taka þannig myndir og segja mína skoðun um hvað mætti laga og þannig, reyni að sjálfsögðu að gera þannig að það sést ekki hver einstaklingurinn er
vona bara að enginn móðgist nú á þessu (:
Mig langar samt að kommenta á eitt. Þó að keppnin í heild sinni hafi verið góð fyrir þig, þá langar mig svo ótrúlega að vita eitt.
ReplyDeleteHver ætlar að dæma það hver fegursta stúlka Íslands sé? Ég skil þetta ekki alveg. Eru ekki u.þ.b. fimm dómarar sem dæma það hver sú fallegasta er? Að mínu mati þykir mér það fáránlegt því hver og ein manneskja hefur sínar skoðanir og sitt álit á öllu. Mér finnst þetta vera alhæfing í einu og öllu :)
okey þetta fer jú þannig séð auðvitað eitthvað eftir útlitinu, en dómararnir dæma mest hvernig útgeisluninn og hvernig þú ert á keppninni sjálfri, æfingum í krinum keppnina, hvort þú sért góð fyrirmyndi og allskona þannig.
ReplyDeleteþetta er ekki bara útlit, hver dómari dæmir fyrir sig..
en útgeislunin og framkoman á sviðinu er númer 1,2 og 3
segjum sem svo að stelpa sem er ekkert neitt ooofsa falleg, en er með þessa virkilega góðu útgeislun sem sést langar leiðir og er ánægð með sjálfan sig getur náð mjög langt á því (:
Persónulega myndi ég ekki vilja sjá mynd af förðuninni minni inná síðunni hjá einhverjum þar sem er verið að setja útá hana,ekki töff að vera vond :)
ReplyDeleteAnnars frábært hjá þér að koma með förðunarráð flott blogg :)
Úff, það væri ekki bara smá vont, heldur hreinlega mjög illa gert -að mér finnst. Rétt eins og skoðanir á fegurðarsamkeppnum er mismunandi þá er skoðun á förðun það líka. Fólk verður nú að vera eins og það vill vera og farða sig eftir því. Til að taka sem dæmi þá snýst blogg Agnesar um heilsu, lífstíl, hreyfingu og svoleiðis, það þætti ekki vel séð ef hún tæki fyrir nokkrar manneskjur sem henni þætti ekki vera fit og segði hvað betur mætti fara í þeirra lífsstíl og svo framvegis. :)
ReplyDeleteSkil líka ekki alveg hvernig þú ætlar að ná að hafa mynd af stelpu sem sýnir förðunina hennar án þess að hún þekkist?
En gaman samt að þú skulir halda uppi svona síðu fyrir okkur núbbana sem erum ekki miklir förðurnarsnillingar - en málum okkur þó eftir okkar bestu getu og smekk. :)
B.k.
Agnes Ósk
ég ætlaði nú mest megnið að reyna að finna myndir af stelpum sem t.d. búa ekki hérna á íslandi.. og ekkert til að vera eitthvað ógeðslega vond, bara segja smá mína skoðun.. ætlaði nú ekki að taka myndir af einhverjum stelpum hérna úr bænum eða neitt þannig :D engar áhyggjur stelpur mínar ;)
ReplyDeleteog það er alveg hægt að sjá mynd af einhverri stelpu sem er t.d. með hræðilegar teiknaðar augabrúnir, taka bara augabrúnirnar, en ekki stelpuna sjálfa..
og ég tel nú ekki sjálfan mig vera einhvern förðunarsnilling sko..