úps kominn meira en mánuður síðan seinast ;$
bara búið að vera brjálað að gera hjá mér þennan mánuð! er að vinna af mér rassgatið!
en já eins og flestir vita þá er Ungfrú Ísland búið, gæti ekki verið sáttari með þetta allt saman! kynntist alveg frábærum stelpum á meðan ég var þarna!
![]() |
Yndislegi fallegi hópur! |
okey það hafa allir heyrt af þessum sögum um hvað ungfrú ísland er strangt og það er bara verið að brjóta mann niður þarna og þetta er bara algjörlega ömurlegt, maður má ekki vera 1 kg og þungur, ströng megrun, mátt ekki vera svona og svona.. þetta er allt svo mikið kjaftæði! langaði bara að taka það fram!
mér fannst þetta hjálpa mér með mína sjálfsmynd, jú ég komst í betra form og maður grennist og léttist því maður vill ekki gera sig af fíbbli í sjónvarpinu.
![]() |
Þótt ég var ekki mjóust er ég nú samt mjórri en ég var! |
en hver man ekki eftir sögunni af einhverri stelpu sem fór í þetta og gerði eitthvað roooosa mál útúr þessu, þetta var EEEENGANN veginn svona! og að við áttum að skrifa undir einhvern samning? hvaða samning segi ég nú bara! ég var aldrei látin skrifa undir eitt né neitt!
vona svo innilega að það verður aftur ungfrú vestfirðir en ekki aftur eins og núna, eftir 4 ár, þá mæli ég hiklaust þið stelpur sem hafa áhuga á þessu, takið þátt! Þetta er með því besta sem ég hef gert!
jú allt þetta ferli kostar sitt, eins og kjóllinn minn kostaði tæpan 50 þúsund kr, ég veit allt þetta fyrir einn kjól, en hann var algjörlega þess virði!
![]() |
ég á enn eftir að fá myndirnar frá pabba sem hann tók af mér á keppninni >.<
en já þetta er bara svona smá um mína reynslu af þessum keppnum þar sem seinasta blogg hjá mér var að ég væri að keppa í þessu :)
ætla einnig að henda nokkrum myndum sem voru teknar á keppninni af mér
ætla að reyna að vera dugleg að koma með tips inná, og ég er smááá að spá í að vera vond, þar sem ég veit um FULLT af myndum af stelpum sem hafa málað sig fyrir djammið, farið út þannig og eru HRÆÐILEGAR! er smá að íhuga að taka þannig myndir og segja mína skoðun um hvað mætti laga og þannig, reyni að sjálfsögðu að gera þannig að það sést ekki hver einstaklingurinn er
vona bara að enginn móðgist nú á þessu (: